Beint á leiðarkerfi vefsins

Ásta Ósk

9.3.2007

Framkvæmdir

Ýmsar framkvæmdir hafa verið í fjósinu á Björgum undanfarnar vikur.

Bursti sem settur var upp árið 2000 og vakti mikla lukku meðal kúnna hafði lokið sínu lífi, fyrir þónokkru síðan, var endurnýjaður og uppfærður. Hann gengur nú fyrir rafmagni. Af fyrri reynslu má reikna með þó nokkrum aðlögunartíma en þegar kýrnar hafa uppgötvað notin verður burstinn vel nýttur.

Þá hafði alltaf verið á teikningum og plönum að setja upp 2 vatnskeröld. Meðkalfar fjölgun gripa var nú seinna vatnskeraldið sett upp.

Mikil vinna hefur alltaf verið að fóðra mjólkurkálfa sem undirrituð hefur talið með erfiðari verkum í annars vel skipulögðu fjósi. Nú hefur verið keypt svokölluð kálfafóstra sem á að létta þreyttum mjaltakonum lífið.

Ég er að öllum líkindum á leið norður yfir heiðar um helgina og mun þá taka þennan nýja útbúnað í fjósinu út og skrifa skýrslu eftir helgi um hvernig mér þykja framkvæmdir hafa tekist til!

 



Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré