Beint á leiðarkerfi vefsins

Félagsbúið Björgum

Ýmislegt hefur breyst í tímans rás. Sem dæmi má nefna heimildir úr svokallaðri „Búkollu“ eða Byggðir og bú Suður – Þingeyinga frá árinu 1960. En þá voru ræktuð tún á 17,6 hekturum lands, taða 745 hestburðir og úthey (engjahey) um 355 hestburðir. Þá voru í búi 13 nautgripir, 284 kindur og 2 hross.

Um 1985 voru ræktuð tún rúmir 37 hektarar, 24 kýr, 20 nautgripir og 210 kindur.

Nú, um áramótin 2006 eru 35 mjólkur kýr. 44 nautgripir og um 130 kindur. Nú eru tún á um 70 hekturum lands. Einnig hefur á síðustu árum verið ræktað korn á jörðum sunnar í sveitinni, nú síðast í samstarfi við bændur á Gautlöndum.

Auk þess eignaðist yngsta heimasætan  hest árið 2006. 

Síðast var heyjað í þurrhey sumarið 2007 en það er nánast útdauð verkunaraðferð í dag. Nokkur ár eru síðan hætt var að heyja í votheysturnana sem var stór og mannfrek aðgerð. Nú er annar turninn notaður sem korngeymsla og útbúa á vinnuaðstöðu í nyrðri turninum. Mest er nú rúllað með John Deere sambyggðri rúlluvél

 

 


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré