
Lítill kálfur varð á vegi Hlöðvers Péturs, Siggu og Jóns Hlöðvers á fallegu föstudagskvöldi á leið þeirra í skemmtiferð út í Naustavík. Þau voru að keyra fram hjá glæsilega kvíguhópnum og sáu óvænt nýfæddan kálf.
Um helgina hittust í þriðja sinn afkomendur Bjargar Grímhildar Sigurðardóttur og bræðranna Hlöðvers og Sigurbjörns Jónssona ásamt tengdafólki til að styrkja fjölskylduböndin og hafa gaman saman.
Þetta var fjölmennasta mótið til þessa eða 83 manns mættir. Allt tókst með ágætum þrátt fyrir súldarveður með köflum og minni hlýindi en vonast hafði verið eftir.
Sólin skartaði sínu fegursta í gær eftir nokkurra daga alskýjað veður. Mikil litadýrð var á himni meðan hún renndi sér fram Vargsnesið og settist á hafflötinn skammt fyrir austan Duggarann. Gullinn bjarmi speglaðist í Bjargarvatni og í skurðum.
Hlöðver bóndi var í sjónvarpsfréttum kvöldsins.
Verið var að fjalla um ísklifrið undir fyrirsögninni: Eitt eftirsóttasta ísklifursvæði landsins
Mikill og góður ís hefur myndast í klettunum í frosti undanfarna vikna.
Ísklifurmenn hafa notfært sér þessar góðu aðstæður og var hópur við klifur í frábæru veðri í gær.
Það voru svo sannarlega hvít jól í ár. Það byrjaði að snjóa um 20. desember og bætti í á hverjum degi þar til 28. des að birti upp með frosti og fallegu veðri. Þó var aldrei slæmt veður og ekki ófærð.
Markverðast er að þrumuveður gekk yfir á aðfangadag. Margir vissu ekkert hvaðan á sig stóð veðrið enda þrumuveður ekki algengt hér, allra síst að vetrarlagi. Einhver hélt að verið væri að taka myndir en hvort þar væru á ferðinni verur frá öðrum hnöttum fylgdi ekki sögunni :)