
Fyrstu lömbin fæddust í morgun, annað svart og hitt hvítt.
Sauðburður er hafinn!!
Myndir síðar.
Nokkuð hefur verið unnið í jarðrækt síðustu daga. Kornakrar hafa verið plægðir upp enda ekki seinna vænna að sá. Þá hefur einnig verið grafið upp úr skurðum og gömul kálstykki plægð upp og tætt.
Merkur gestur kom í Björg í dag, Sólveig Ásta leit í mat og borðaði einstaklega hollt brauð. Þar að auki samþykkti hún að sjá um fjósið auk þess sem hún samþykkti að laga til í kjallaranum.
Tvær kýr báru í dag, bar önnur fallegri kvígu en það var fyrsti kálfurinn hennar Steypu nr 239. Burðurinn gekk alveg vandræðalaust hjá henni en þegar HPH og JBH hugðust draga kálfinn úr henni eftir gegningar reyndist hún hafa bjargað sér sjálf
Við sama tækifæri og kálfafóstran var sett upp var svokölluðum kúabursta skipt út en gamli burstinn var löngu úr sér genginn vegna notkunar.
Hlöðver, Þóra og Jóna stóðu í rúlluflutningum á Föstudeginum langa
Heilmikið ísfestival var haldið í lok febrúar. Hingað voru mættir bæði innlendir sem og erlendir þátttakendur og einn þeirra, sem kom frá Asuturríki, heitir Albert Leichtfried og er hann mjög þekktur í faginu.
Mikill spenningur var í sjónvarpssófanum þegar Ásta Soffía ...
Mikill bylur gekk yfir í sveitinni á föstudagskvöldið 23. mars ..
Fjölgun í ættinni hjá Sigurði Frey og Hanne út í Svíþjóð
Birt er upp eftir norðangarra helgarinnar og aftur farið að sjá í fjöllin fögru.
Í kvöld þann 20. mars verður smá afmæliskaffi í Formannshúsi ...
Í dag náði Toggi "hestaafi" í hestinn minn Bjart í sveitina ..
Færri komust að en vildu á gríðarlega spennandi vefstjórnunarnámskeið Tölvumiðlunar í dag. brá svo við að fólk bæði stóð á borðum og sat á gólfinu til að fá að berja námsefnið augum.
Frænkur eru nú búnar að sitja á námskeiði hjá Tölvumiðlun og telja sig nú færa í flestan sjó. ![]()
Einfaldast er að nota svokallað fréttakerfi Outcome til að skrifa á vefinn ...