Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðalsíða

29.4.2007

Hlöðver að slóðadraga

slodadr2Við vorum í sveitinni um helgina ....

28.4.2007

Amma komin heim í ríki sitt

Mottaka-RosuAmma er komin aftur heim, eftir vísitasíu sunnan heiða.  Nokkrir fagnaðarfundir voru með henni og kettinum Rósu, sem hafði verið í vist á Húsavík meðan á vísitasíu stóð.   ÞBH

25.4.2007

Jarðrækt

Nokkuð hefur verið unnið í jarðrækt síðustu daga. Kornakrar hafa verið plægðir dýriðplógurupp enda ekki seinna vænna að sá. Þá hefur einnig verið grafið upp úr skurðum og gömul kálstykki plægð upp og tætt.

22.4.2007

Sjaldséðir hrafnar á ferli

Merkur gestur kom í Björg í dag, Sólveig Ásta leit í mat og borðaði einstaklega hollt brauð. Þar að auki samþykkti hún að sjá um fjósið auk þess sem hún samþykkti að laga til í kjallaranum.

22.4.2007

Burður

Tvær kýr báru í dag, bar önnur fallegri kvígu en það var fyrsti kálfurinn hennar Steypu nr 239. Burðurinn gekk alveg vandræðalaust hjá henni en þegar HPH og JBH hugðust draga kálfinn úr henni eftir gegningar reyndist hún hafa bjargað sér sjálf

6.4.2007

Kusuklóra

Við sama tækifæri og kálfafóstran var sett upp var svokölluðum kúabursta skipt út en gamli burstinn var löngu úr sér genginn vegna notkunar.

6.4.2007

Kálfafóstran

Nýlega var sett upp kálfafóstra fyrir smákálfana.

6.4.2007

Föstudagurinn langi

Hlöðver, Þóra og Jóna stóðu í rúlluflutningum á Föstudeginum langa dýrið

2.4.2007

Ísklifurmót í febrúar sl.

Heilmikið ísfestival var haldið í lok febrúar. Hingað voru mættir bæði innlendir sem og erlendir þátttakendur og einn þeirra, sem kom frá Asuturríki, heitir Albert Leichtfried og er hann mjög þekktur í faginu.

1.4.2007

Hönnuður vefsíðunnar og Ljótu hálfvitarnir

AggiÁstæða er til að heiðra hönnuð vefsíðunnar, Agga en hann ....

1.4.2007

Ásta spilar í Stundinni okkar

StundinokkarMikill spenningur var í sjónvarpssófanum þegar Ásta Soffía ... 


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré