Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðalsíða

26.12.2009

Hvít jól og þrumuveður

 

 

Það voru svo sannarlega hvít jól í ár. Það byrjaði að snjóa um 20. desember og bætti í á hverjum degi þar til 28. des að birti upp með frosti og fallegu veðri. Þó var aldrei slæmt veður og ekki ófærð.

 

Markverðast er að þrumuveður gekk yfir á aðfangadag. Margir vissu ekkert hvaðan á sig stóð veðrið enda þrumuveður ekki algengt hér, allra síst að vetrarlagi. Einhver hélt að verið væri að taka myndir en hvort þar væru á ferðinni verur frá öðrum hnöttum fylgdi ekki sögunni :)

23.12.2009

Jólatrésferð

Jólatrén í ár 

 

Jólatrén voru sótt upp í skógræktargirðingu á Þorláksmessu eins og venjulega.

Höggvin voru 4 jólatré, eitt fyrir hvert heimilanna þriggja og eitt pínulítið tré fyrir Alex yngsta heimilismanninn.

8.11.2009

Nokkrar nýjar myndir

 

Horft frá Karlsánni

 

 

Nokkrar nýjar myndir frá síðastliðnu sumri eru komnar á myndasíðuna okkar. Sjá nánar hér.

8.11.2009

Kornskurði 2009 lokið

Loks tókst að ljúka kornskurði! Ekki tjáði að bíða þess að snjóa leysti á láglendi heldur var akurinn þresktur meðan enn var snjóföl.

Byggið nær fullþroskaðFréttir eru reyndar oft lengi að berast að norðan þannig að þegar þessi frétt er skrifuð er orðið ansi langt um liðið síðan þreskingu lauk.

Uppskera var með ágætum þótt sumarið hefði verið með eindæmum votviðrasamt.

8.10.2009

2.göngur

Þann 29. september síðastliðinn var farið í aðrar göngur út í Víkur. Þóra Magnea, Tommi, Nils Bjartur og Kristján í Árlandi skipuðu vaskan hóp sem sótti þangað 14 kindur. Hlöðver og Örvar stóðu á meðan vörð í Bjargarkróknum og vísuðu gangnamönnum til vegar (svokölluð gangnaafskiptasemi).

Kindurnar vilja komast úr aðhaldinu og heim  

Vel gekk að koma fé heim, enda hafði verið kalt í veðri og féð sjálfsagt fegið að komast niður á tún.

 

27.9.2009

Kornskurður hafinn

Kornskurður 2009 er hafinn. Núna er búið að þreskja í Garði og er uppskeran með ágætum.

Uppskeran er ívíð meira en í fyrra en þroskastigið er ekki alveg jafnmikið. VeðriKornakurinnð hefur ekki alveg leikið við kornbændur þessa daganna en snjór er kominn langt niður Ógöngufjall og snjóaði á láglendi í Reykjadal.
Nú er bara að bíða eftir að það hláni inn í dal svo hægt sé að klára!

 

 

21.9.2009

Fyrri slátrun lokið

Fyrri slátrun var fimmtudaginn 17. september síðastliðinn. Afurðir eru svipaðar fyrra ári en fé kom ekki jafn vænt af fjalli og 2008.

Meðalvigt þeirra 70 lamba sem voru send í þetta skiptið reyndust 16,8 kg, með gerðina 8,88

Eftir að sláturgögn skila sér frá Norðlenska verður hafist handa við að meta afurðir út frá hrútum og ýmis talnaspeki og tölfræði verður greind og vonandi birt hér innan tíðar!

 IMG_2743

14.9.2009

Göngur

 Við Náttfaralæk    Afréttin var smöluð í blíðskaparveðri um helgina

18.8.2009

Fegrun umhverfis

Fegrun útihúsa    Hreinsað og fegrað var við fjós og fjárhús.

17.8.2009

Nýtum landsins gæði

   Þema sumarsins hefur verið:   Nýtum landsins gæði

4.1.2009

Icebjorg

Seacliff_Kaldakinn2 Ísbjörg

A brand new part of this website has now been opened, a section about the iceclimbing area Icebjorg. This is also currently the only part of the website in English.  Please check out our new Icebjorg site.   english flag

 

 

 Hér hefur nú verið opnuð síða um ísklifursvæðið Ísbjörg. Þar er að finna upplýsingar og myndir um svæðið einkum ætlað fyrir erlent ísklifursfólk.  Lítið endilega á nýju Icebjorg síðuna.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré