
Mikill ís hefur nú þegar myndast í klettum Ógöngufjallsins og allt virðist tilbúið fyrir ísklifrið.
Og ekki vantar fegurðina í vetrarsólinni.
Fleiri myndir má sjá hér
Snati fékk lítið að eltast við kindur í sumar
þannig að hann elti bara öldurnar í staðinn
Farið var í 1. göngur 11. og 12. september.
Vaskur hópur gangnamanna, alls 12 manns bæði vanir menn og nýgræðingar fóru út í Víkur eldsnemma á laugardagsmorgni.
2 menn fóru í Bakranga, 2 í Vesturdal og 1 í Austurdal
Lítill kálfur varð á vegi Hlöðvers Péturs, Siggu og Jóns Hlöðvers á fallegu föstudagskvöldi á leið þeirra í skemmtiferð út í Naustavík. Þau voru að keyra fram hjá glæsilega kvíguhópnum og sáu óvænt nýfæddan kálf.
Um helgina hittust í þriðja sinn afkomendur Bjargar Grímhildar Sigurðardóttur og bræðranna Hlöðvers og Sigurbjörns Jónssona ásamt tengdafólki til að styrkja fjölskylduböndin og hafa gaman saman.
Þetta var fjölmennasta mótið til þessa eða 83 manns mættir. Allt tókst með ágætum þrátt fyrir súldarveður með köflum og minni hlýindi en vonast hafði verið eftir.
Sólin skartaði sínu fegursta í gær eftir nokkurra daga alskýjað veður. Mikil litadýrð var á himni meðan hún renndi sér fram Vargsnesið og settist á hafflötinn skammt fyrir austan Duggarann. Gullinn bjarmi speglaðist í Bjargarvatni og í skurðum.
Hlöðver bóndi var í sjónvarpsfréttum kvöldsins.
Verið var að fjalla um ísklifrið undir fyrirsögninni: Eitt eftirsóttasta ísklifursvæði landsins
Mikill og góður ís hefur myndast í klettunum í frosti undanfarna vikna.
Ísklifurmenn hafa notfært sér þessar góðu aðstæður og var hópur við klifur í frábæru veðri í gær.