
Ársins 2011 verður ekki minnst fyrir veðurgæði. Sumarið byrjaði ekki fyrr en í júlí og hellirigndi í allt haust. Veturinn skall á í desember með snjó og hörkufrosti.
Eftir rigningar haustsins er nægt fóður fyrir ísfossana og nú er meiri ís en við höfum nokkurn tíma séð og ísfossar myndast á nýjum stöðum.
Nú biðjum við bara um eðlilegan norðlenskan vetur.
Fleiri myndir má sjá á myndasíðu
Mikil og sérstök fegurð blasti við á suðurhimni í morgun.
Ótrúlegt var að fylgjast með litadýrðinni!
Fleiri myndir af þessari dýrð má sjá á Flickr-síðunni