Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðalsíða

20.3.2007

Birt upp eftir norðangarra

birtupp

Birt er upp eftir norðangarra helgarinnar og aftur farið að sjá í fjöllin fögru. Jafnvel farið að glitta í sól annað slagið

Getur þá móðir okkar aftur farið að njóta útsýnisins úr eldhúsi sínu í sveitinni.

Að vísu kann það að byggja á því að hún hafi náð að fá son sinn bóndann til að fara út með sópinn og hreinsa af gluggunum, en þeir voru að sögn, fannbarðir eftir helgina.

Var hún býsna að barma sér um helgina að sjá ekkert út, hvað ég tók ekki í mál taka undir, sá frekar kost í því að hafa þetta svona hlýlegt, frekar en að horfa út í norðangarrann.

ÞBH


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré