Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðalsíða

6.4.2007

Kusuklóra

Við sama tækifæri og kálfafóstran var sett upp var sk. kúabursta skipt út.

kistagamli samanstóð af tveim burstum, þar af annar á gormi.  Sá bursti var löngu úr sér genginn vegna notkunar.

Nýi burstinn er rafdrifinn og er almennt álitið að með því að taka rafmagnið í sína þágu hafi burstinn fyrst slegið almennilega í gegn. Nú eru allir hryggir og hausar í fjósinu glansandi fínir og ánægja mikil meðal kúnna. Fréttaritari náði mynd af Kistu við burstann og er ekki annað að sjá en að hún sé í sjöunda himni með nýja burstann.

JBH

 


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré