Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðalsíða

22.4.2007

Burður

Tvær kýr báru í dag, bar önnur fallegri kvígu en það var fyrsti kálfurinn hennar Steypu nr 239. Burðurinn gekk alveg vandræðalaust hjá henni en þegar HPH og JBH hugðust draga kálfinn úr hennir eftir gegningar reyndist hún hafa bjargað sér sjálf. Til skýringar nafngiftar Steypu sagði Þóra að fyrir utan að hún væri grá þá þætti hún ekki bera af í vitsmunum.

Þá bar Dimma 141 (öðru nafni Snælda) einnig.

JBH


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré