
Sauðburður er enn í fullum gangi en farið að síga á seinni hlutann, u.þ.b. fjórðungur eftir óborinn.
Lítið hefur verið hægt að setja út lambfé vegna kulda síðustu daga en nú lítur út fyrir betri tíð.
Alltaf þarf öðru hvoru að hjálpa kindum við burð og það sýndi sig að Nana hefur engu gleymt í þeim efnum.
SBH