
Annar í hvítasunnu heilsaði með sól og góðu veðri og því var tækifærið notað til að sleppa nokkrum einlembum í úthaga.
En fyrst þurfti að marka:
lögg aftan hægra
og biti aftan vinstra.
En þetta var markið hennar Bjargar ömmu og notað fyrir einlembingana.
Markið hans afa: hófbiti aftan hægra og tvíbiti framan vinstra er síðan notað á tvílembingana.
SBH