
Gangnadagurinn í Víkum var einn besti dagur sumarsins, sól og hátt í 20° hiti.
Gangnamenn telja að tekist hafi að ná öllu fé heim nema einni sem varð eftir í Skálavík. Eftir eltingaleik stakk hún sér frekar í sjóinn en að láta reka sig til byggða.
Eltingaleikur varð við fleiri sem greinilega vildu vera lengur í sumarparadísinni. Að öðru leyti gekk smalamennskan nokkuð vel þótt menn væru sveittir og þreyttir þegar komið var til byggða
Féð var rekið í aðhaldið við Purkárbrú og sótt morguninn eftir og rekið heim í Björg.
Vitað er um nokkrar kindur í Litlufjörutorfu sem eftir er að ná heim
Gangnamenn og aðstoðarfólk:
Erlingur, Hörður, Jón Hlöðver, Ásta Soffía, Friðrik Ari, Þóra Magnea, Snorri, Nils Bjartur, Eiður, Ingólfur Páll, Hilmar, Þórólfur, Gunnar, Hlöðver Pétur, Alex og Remy (frá Nýju-Kaledóníu)
Snati fékk að fara með í "starfskynningu". Hann var ekki sérlega ánægður með að þurfa að hýrast upp á palli allan tímann og vældi mikið.
Hann er efnilegur smalahundur og kemur áreiðanlega að góðum notum að ári.
Fleiri myndir frá göngum má sjá hér
SBH