
Aðalbláberin voru mjög stór og falleg en það hefðu mátt vera fleiri sólardagar til að týna þau.
Krækiberin voru víða í miklu magni og stór. Saftin úr þeim endist vonandi veturinn.
Fjallagrös finnast orðið á ótrúlegustu stöðum í Bjargarlandi, niður á bakka og í hólmanum, norðan við vatn og upp á fjalli. Nú þarf því ekki lengur að fara upp til heiða til að safna grösum.
Það kemur sér vel því að fjallagrasabrauðið hvarf af borðinu um leið.
Hvönnin hefur einnig verið nýtt, með rabbarbara í sultu og fræin þurrkuð í brauð.
Hvoru tveggja ótrúlega gott
Hrútaberin í Blikahjallanum hafa aldrei verið meiri né stærri undanfarin 10 ár.
Hlaupið úr þeim er mjög gott, aðeins beiskt en bragðmikið.
Þá er bara að undirbúa sig fyrir næsta sumar og nýta þá m.a. njólann og garðakerfilinn sem er að ergja mann.
SBH