
Kornskurður 2009 er hafinn. Núna er búið að þreskja í Garði og er uppskeran með ágætum.
Uppskeran er ívíð meira en í fyrra en þroskastigið er ekki alveg jafnmikið. Veðrið hefur ekki alveg leikið við kornbændur þessa daganna en snjór er kominn langt niður Ógöngufjall og snjóaði á láglendi í Reykjadal.
Nú er bara að bíða eftir að það hláni inn í dal svo hægt sé að klára!
Kornþurrkunaraðstaða var útbúin í Gömlu-Hlöðu síðasta haust en þetta árið var aðstaðan færð yfir í stóru hlöðuna. Þar eru núna komnir um 90 rúmmetrar af korni.
Hér er kornakurinn í Garði.