Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðalsíða

8.10.2009

2.göngur

Þann 29. september síðastliðinn var farið í aðrar göngur út í Víkur. Þóra Magnea, Tommi, Nils Bjartur og Kristján í Árlandi skipuðu vaskan hóp sem sótti þangað 14 kindur. Hlöðver og Örvar stóðu á meðan vörð í Bjargarkróknum og vísuðu gangnamönnum til vegar (eða svokölluð gangnaafskiptasemi).

Vel gekk að koma fé heim, enda hafði verið kalt í veðri og féð sjálfsagt fegið að komast niður á tún.  

Fyrri slátrun kom vel út. Líkt og í fyrra gefur Pinni 07-506 afburða góð sláturlömb, með meðalvigtina 17,3. Það sem hefur þó háð Pinna og veldur því að lítið er sett á undan honum er að frjósemi mælist slök hjá honum.

Fegurðardís

Salómon sýnir einnig sterk einkenni Hests-hrúta enda undan Hests-hrútnum Kveik. Þetta sést helst í því að lömb undan Salómon eru með hátt mat í vöðva en lægra mat í fitu eða 9,11 í vöðva og 5,6 í fitu og meðalvigtina 16,9.  Óhætt er að fullyrða að mörg líflömb þetta árið verða undan Salómon.

Um næstu helgi kemur ráðunautur í Björg og ómmælir og dæmir líflömb, í næstu viku verður svo seinni slátrun, fréttir berast af því síðar

Með kveðju frá Hvanneyri

JBH

 

         


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré