
Loks tókst að ljúka kornskurði! Ekki tjáði að bíða þess að snjóa leysti á láglendi heldur var akurinn þresktur meðan enn var snjóföl.
Fréttir eru reyndar oft lengi að berast að norðan þannig að þegar þessi frétt er skrifuð er orðið ansi langt um liðið síðan þreskingu lauk.
Uppskera var með ágætum þótt sumarið hefði verið með eindæmum votviðrasamt.
Nú er rúmlega helmingur uppskerunnar komin á sinn stað í suðurturninum en rúmir 40 rúmmetrar bíða þess að þurrkun ljúki í stóru hlöðunni en þar var sett upp þurrkun með súgþurrkun. Tréstokkur var byggður yfir súgþurrkunina í hlöðuninni. Útfrá þessum stokk liggja svo plastrennur sem leiða loftið um kornið.
Þegar fréttaritari Björgum.is kom í sveitina um síðustu helgi (síðasta helgi októbermánaðar), var þurrkstig kornins athugað og vantar einungis örfrá prósentustig upp á að kornið teljist fullþurrkað.
Einnig er búið að hirða hálminn og rúlla, hálmurinn er sumstaðar að verða verðmætari en kornið, sérstaklega þar sem hægt er að selja hestamönnum hálminn í undirburð. En þessi hálmur verður að mestu notaður í undirburð fyrir kálfa og kýr fyrir burð.
//JBH