
Þau ákváðu að láta hann vera og leyfa honum að vera hjá móður sinni yfir nóttina. En þegar Hlöðver Pétur og Jón Hlöðver fóru heim um morguninn til að mjólka sáu þeir ekki kálfinn í kvíguhópnum. Jón Hlöðver leitaði og leitaði en hvergi fannst kálfurinn.
Eftir tveggja daga leit hafði ekkert sést af kálfinum hvorki hali né eyra svo þeir gáfust upp við leitina.
Eftir sex daga, sem sagt á fimmtudagskvöldi, fékk Hlöðver bóndi hringingu frá ágætum veiðimönnum sem sögðust vera búnir að finna eitt stykki kálf úti í Krók. Hlöðver Pétur kallaði á Ástu Soffíu og sagði henni fréttirnar og hún hoppaði hæð sína af gleði.
Jón Hlöðver og Ásta Soffía tóku á móti veiðimönnunum og þau fóru með kálfinn inn sem var kaldur og svangur og gáfu honum mjólkurdreitil í mallakútinn.
Mjólkin er góð!
Ákveðið var að gefa þessum fallega kálfi nafnið Ófeigur Fjörulalli.
Veiðimönnunum var gefið kaffi að launum.
ÁSÞ & ABF