Beint á leiðarkerfi vefsins

Hlöðver og Konný

8.11.2009

Kornskurði 2009 lokið

Loks tókst að ljúka kornskurði! Ekki tjáði að bíða þess að snjóa leysti á láglendi heldur var akurinn þresktur meðan enn var snjóföl.

Byggið nær fullþroskaðFréttir eru reyndar oft lengi að berast að norðan þannig að þegar þessi frétt er skrifuð er orðið ansi langt um liðið síðan þreskingu lauk.

Uppskera var með ágætum þótt sumarið hefði verið með eindæmum votviðrasamt.

8.10.2009

2.göngur

Þann 29. september síðastliðinn var farið í aðrar göngur út í Víkur. Þóra Magnea, Tommi, Nils Bjartur og Kristján í Árlandi skipuðu vaskan hóp sem sótti þangað 14 kindur. Hlöðver og Örvar stóðu á meðan vörð í Bjargarkróknum og vísuðu gangnamönnum til vegar (svokölluð gangnaafskiptasemi).

Kindurnar vilja komast úr aðhaldinu og heim  

Vel gekk að koma fé heim, enda hafði verið kalt í veðri og féð sjálfsagt fegið að komast niður á tún.

 

27.9.2009

Kornskurður hafinn

Kornskurður 2009 er hafinn. Núna er búið að þreskja í Garði og er uppskeran með ágætum.

Uppskeran er ívíð meira en í fyrra en þroskastigið er ekki alveg jafnmikið. VeðriKornakurinnð hefur ekki alveg leikið við kornbændur þessa daganna en snjór er kominn langt niður Ógöngufjall og snjóaði á láglendi í Reykjadal.
Nú er bara að bíða eftir að það hláni inn í dal svo hægt sé að klára!

 

 

29.11.2008

Tilraun

Tilraun á tengslum við gagnagrunninn...T

2.1.2008

Hestar í háska

 

Þóra og ÁsUm leið og Björgum.is óskar öllum gleðilegra jóla og góðs árs þá er við hæfi að hefja fréttaárið með háskatíðindum sem skuku Bjargarbúa við upphaf ársins. 

Þegar Bjargarbúar vöknuðu á nýársdag þá voru hestarnir horfnir. Þeir höfðu fælst við flugeldaskarkalann.

14.5.2007

Fyrstu lömbin

Fyrstu lömbin fæddust í morgun, annað svart og hitt hvítt.

Sauðburður er hafinn!!

Myndir síðar.

4.5.2007

Gamli græni

Ég rakst á ansi skemmtilega frétt á vísi.is í gærkvöldi. Þar var hann Óttar frá Akureyri sem fyrir nokkrum árum seldi okkur eldgamlan grænan LandRover. En svo mikið hafði hann saknað bílsins að fyrir nokkru kom hann bónarleið með annan rover og baðst þess græna aftur.

En í fréttinni kom fram að hann telur sig vera fyrsta íslendinginn sem notar jurtaolíu á bílinn sinn.


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré