Beint á leiðarkerfi vefsins

Hlöðver og Konný

14.5.2007

Fyrstu lömbin

Fyrstu lömbin fæddust í morgun, annað svart og hitt hvítt.

Sauðburður er hafinn!!

Myndir síðar.

4.5.2007

Gamli græni

Ég rakst á ansi skemmtilega frétt á vísi.is í gærkvöldi. Þar var hann Óttar frá Akureyri sem fyrir nokkrum árum seldi okkur eldgamlan grænan LandRover. En svo mikið hafði hann saknað bílsins að fyrir nokkru kom hann bónarleið með annan rover og baðst þess græna aftur.

En í fréttinni kom fram að hann telur sig vera fyrsta íslendinginn sem notar jurtaolíu á bílinn sinn.

25.4.2007

Jarðrækt

Nokkuð hefur verið unnið í jarðrækt síðustu daga. Kornakrar hafa verið plægðir dýriðplógurupp enda ekki seinna vænna að sá. Þá hefur einnig verið grafið upp úr skurðum og gömul kálstykki plægð upp og tætt.

22.4.2007

Sjaldséðir hrafnar á ferli

Merkur gestur kom í Björg í dag, Sólveig Ásta leit í mat og borðaði einstaklega hollt brauð. Þar að auki samþykkti hún að sjá um fjósið auk þess sem hún samþykkti að laga til í kjallaranum.

22.4.2007

Burður

Tvær kýr báru í dag, bar önnur fallegri kvígu en það var fyrsti kálfurinn hennar Steypu nr 239. Burðurinn gekk alveg vandræðalaust hjá henni en þegar HPH og JBH hugðust draga kálfinn úr henni eftir gegningar reyndist hún hafa bjargað sér sjálf

6.4.2007

Kusuklóra

Við sama tækifæri og kálfafóstran var sett upp var svokölluðum kúabursta skipt út en gamli burstinn var löngu úr sér genginn vegna notkunar.

6.4.2007

Kálfafóstran

Nýlega var sett upp kálfafóstra fyrir smákálfana.

6.4.2007

Föstudagurinn langi

Hlöðver, Þóra og Jóna stóðu í rúlluflutningum á Föstudeginum langa dýrið

2.4.2007

Ísklifurmót í febrúar sl.

Heilmikið ísfestival var haldið í lok febrúar. Hingað voru mættir bæði innlendir sem og erlendir þátttakendur og einn þeirra, sem kom frá Asuturríki, heitir Albert Leichtfried og er hann mjög þekktur í faginu.

1.4.2007

Hönnuður vefsíðunnar og Ljótu hálfvitarnir

AggiÁstæða er til að heiðra hönnuð vefsíðunnar, Agga en hann ....

25.3.2007

Foktjón hjá „Hótel Björgum“

Sveit-2503075Mikill bylur gekk yfir í sveitinni á föstudagskvöldið 23. mars ..

25.3.2007

Skroppið í sveitina

Sveit-2503077

Ástu Soffíu fannst vera orðið allt of langt síðan hún komst í sveitina ...

20.3.2007

Fjölgun í ættinni - Magnús Sigurðsson

MagnusSigFjölgun í ættinni hjá Sigurði Frey og Hanne út í Svíþjóð

20.3.2007

Birt upp eftir norðangarra

birtuppBirt er upp eftir norðangarra helgarinnar og aftur farið að sjá í fjöllin fögru.

 

5.3.2007

Skrif á vefinn

Einfaldast er að nota svokallað fréttakerfi Outcome til að skrifa á vefinn ...


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré