
Ég rakst á ansi skemmtilega frétt á vísi.is í gærkvöldi. Þar var hann Óttar frá Akureyri sem fyrir nokkrum árum seldi okkur eldgamlan grænan LandRover. En svo mikið hafði hann saknað bílsins að fyrir nokkru kom hann bónarleið með annan rover og baðst þess græna aftur.
En í fréttinni kom fram að hann telur sig vera fyrsta íslendinginn sem notar jurtaolíu á bílinn sinn.
Hér er fréttin eins og hún birtist á fréttasíðunni N4
Óttar telur sig eina Íslendinginn sem gerir þetta og þykir ekki ólíklegt að bíllinn hans sé sá umhverfisvænasti á landinu. Hann segist ekki hafa þurft að gera flóknar breytingar á bifreiðinni en bíllinn notar díselolíuna og matarolíuna til skiptist. Starta þarf bílnum upp með díselbrennslu vegna þess hve þykk matarolían er en svo skiptir Óttar yfir með þar til gerðum krana.
Norðmaður komst í heimsfréttir fyrir áþekka hluti fyrir skömmu en ekki þarf sem sagt að leita út fyrir Akureyri til að finna viðlíka einstætt framtak í umhverfisvernd, því mun minni mengun fylgir þessum bíl en venjulegum bílum. Þess má geta að lykt af frönskum kartöflum berst út um pústurrörið á bíl Óttars og æsir tíðum upp hungur nálægra, að hans sögn.