
Ég skráði mig á námskeið í rúningi sem var haldið 5. og 6. nóvember síðastliðinn. Guðmundur Hallgrímsson kenndi og fór kennslan fram á Hesti í Borgarfirði.
Farið var yfir rúningsaðferðina sem og líkamsbeitingu og aðferða við láta kindina haga sér. Þetta var oft eins og að læra flókinn tangó! Skref til hægri, hælinn út, stíga fram, stíga aftur og beygja!
Engu að síður afar skemmtilegt þótt ég hefði verið alsett marblettum eftir styggt Hestsféð. Síðan er stefnan sett á að fá að prófa að rýja kindurnar heima á Björgum og sannfæra föður minn um að fá að grípa í kindur, því hans rúningsaðferð er ólík þeirri sem ég lærði. Hvernig mun svo ganga er óvíst og hvort ég muni gefast upp eftir nokkrar er stór spurning!
Þessi verður rúin inn að skinni! :)
Loks tókst að ljúka kornskurði! Ekki tjáði að bíða þess að snjóa leysti á láglendi heldur var akurinn þresktur meðan enn var snjóföl.
Fréttir eru reyndar oft lengi að berast að norðan þannig að þegar þessi frétt er skrifuð er orðið ansi langt um liðið síðan þreskingu lauk.
Uppskera var með ágætum þótt sumarið hefði verið með eindæmum votviðrasamt.
Þann 29. september síðastliðinn var farið í aðrar göngur út í Víkur. Þóra Magnea, Tommi, Nils Bjartur og Kristján í Árlandi skipuðu vaskan hóp sem sótti þangað 14 kindur. Hlöðver og Örvar stóðu á meðan vörð í Bjargarkróknum og vísuðu gangnamönnum til vegar (svokölluð gangnaafskiptasemi).
Vel gekk að koma fé heim, enda hafði verið kalt í veðri og féð sjálfsagt fegið að komast niður á tún.
Kornskurður 2009 er hafinn. Núna er búið að þreskja í Garði og er uppskeran með ágætum.
Uppskeran er ívíð meira en í fyrra en þroskastigið er ekki alveg jafnmikið. Veðri
ð hefur ekki alveg leikið við kornbændur þessa daganna en snjór er kominn langt niður Ógöngufjall og snjóaði á láglendi í Reykjadal.
Nú er bara að bíða eftir að það hláni inn í dal svo hægt sé að klára!
Fyrri slátrun var fimmtudaginn 17. september síðastliðinn. Afurðir eru svipaðar fyrra ári en fé kom ekki jafn vænt af fjalli og 2008.
Meðalvigt þeirra 70 lamba sem voru send í þetta skiptið reyndust 16,8 kg, með gerðina 8,88
Eftir að sláturgögn skila sér frá Norðlenska verður hafist handa við að meta afurðir út frá hrútum og ýmis talnaspeki og tölfræði verður greind og vonandi birt hér innan tíðar!
Um leið og Björgum.is óskar öllum gleðilegra jóla og góðs árs þá er við hæfi að hefja fréttaárið með háskatíðindum sem skuku Bjargarbúa við upphaf ársins.
Þegar Bjargarbúar vöknuðu á nýársdag þá voru hestarnir horfnir. Þeir höfðu fælst við flugeldaskarkalann.