
Heyskapur hófst 1. júlí. Uppskera hefur verið nokkru minni en fyrri ár en þar vegur helst að sáðgresi hefur látið undan fyrir fyrir harðgerðari plöntum eins og snarrót.
Sólveig Björg hirðljósmyndari hefur staðið vaktina í heyskapnum og má sjá afraksturinn á myndasíðu.
Sauðburður er nú hafinn á Björgum. Óvænt drottning kom í heiminn 25. apríl undan gemlingi og er uppruni þess nú í rannsókn. Segja má að sauðburður hafi þó hafist 7. maí þegar sæðingaár tóku að bera og eru hátt í 10 ær bornar þann 12. maí.
Frjósemi er enn sem komið er í góðu meðallagi og afföll verða vonandi lítil.
Ég skráði mig á námskeið í rúningi sem var haldið 5. og 6. nóvember síðastliðinn. Guðmundur Hallgrímsson kenndi og fór kennslan fram á Hesti í Borgarfirði.
Farið var yfir rúningsaðferðina sem og líkamsbeitingu og aðferða við láta kindina haga sér. Þetta var oft eins og að læra flókinn tangó! Skref til hægri, hælinn út, stíga fram, stíga aftur og beygja!
Engu að síður afar skemmtilegt þótt ég hefði verið alsett marblettum eftir styggt Hestsféð. Síðan er stefnan sett á að fá að prófa að rýja kindurnar heima á Björgum og sannfæra föður minn um að fá að grípa í kindur, því hans rúningsaðferð er ólík þeirri sem ég lærði. Hvernig mun svo ganga er óvíst og hvort ég muni gefast upp eftir nokkrar er stór spurning!
Þessi verður rúin inn að skinni! :)
Loks tókst að ljúka kornskurði! Ekki tjáði að bíða þess að snjóa leysti á láglendi heldur var akurinn þresktur meðan enn var snjóföl.
Fréttir eru reyndar oft lengi að berast að norðan þannig að þegar þessi frétt er skrifuð er orðið ansi langt um liðið síðan þreskingu lauk.
Uppskera var með ágætum þótt sumarið hefði verið með eindæmum votviðrasamt.
Þann 29. september síðastliðinn var farið í aðrar göngur út í Víkur. Þóra Magnea, Tommi, Nils Bjartur og Kristján í Árlandi skipuðu vaskan hóp sem sótti þangað 14 kindur. Hlöðver og Örvar stóðu á meðan vörð í Bjargarkróknum og vísuðu gangnamönnum til vegar (svokölluð gangnaafskiptasemi).
Vel gekk að koma fé heim, enda hafði verið kalt í veðri og féð sjálfsagt fegið að komast niður á tún.
Kornskurður 2009 er hafinn. Núna er búið að þreskja í Garði og er uppskeran með ágætum.
Uppskeran er ívíð meira en í fyrra en þroskastigið er ekki alveg jafnmikið. Veðri
ð hefur ekki alveg leikið við kornbændur þessa daganna en snjór er kominn langt niður Ógöngufjall og snjóaði á láglendi í Reykjadal.
Nú er bara að bíða eftir að það hláni inn í dal svo hægt sé að klára!