
Fyrstu lömbin fæddust í morgun, annað svart og hitt hvítt.
Sauðburður er hafinn!!
Myndir síðar.
Ég rakst á ansi skemmtilega frétt á vísi.is í gærkvöldi. Þar var hann Óttar frá Akureyri sem fyrir nokkrum árum seldi okkur eldgamlan grænan LandRover. En svo mikið hafði hann saknað bílsins að fyrir nokkru kom hann bónarleið með annan rover og baðst þess græna aftur.
En í fréttinni kom fram að hann telur sig vera fyrsta íslendinginn sem notar jurtaolíu á bílinn sinn.
Ég var að setja inn smá leiðarvísi um sjálfa mig hér til hliðar.
Nokkuð hefur verið unnið í jarðrækt síðustu daga. Kornakrar hafa verið plægðir upp enda ekki seinna vænna að sá. Þá hefur einnig verið grafið upp úr skurðum og gömul kálstykki plægð upp og tætt.
Merkur gestur kom í Björg í dag, Sólveig Ásta leit í mat og borðaði einstaklega hollt brauð. Þar að auki samþykkti hún að sjá um fjósið auk þess sem hún samþykkti að laga til í kjallaranum.
Tvær kýr báru í dag, bar önnur fallegri kvígu en það var fyrsti kálfurinn hennar Steypu nr 239. Burðurinn gekk alveg vandræðalaust hjá henni en þegar HPH og JBH hugðust draga kálfinn úr henni eftir gegningar reyndist hún hafa bjargað sér sjálf
Við sama tækifæri og kálfafóstran var sett upp var svokölluðum kúabursta skipt út en gamli burstinn var löngu úr sér genginn vegna notkunar.
Hlöðver, Þóra og Jóna stóðu í rúlluflutningum á Föstudeginum langa
Í dag var haldið námskeið í Tölvumiðlun þar sem farið var í gegnum helstu úrræði við vinnslu í vefstjórnunarkerfi Outcome.
Frænkur eru nú búnar að sitja á námskeiði hjá Tölvumiðlun og telja sig nú færa í flestan sjó. ![]()
Einfaldast er að nota svokallað fréttakerfi Outcome til að skrifa á vefinn ...