
Um leið og Björgum.is óskar öllum gleðilegra jóla og góðs árs þá er við hæfi að hefja fréttaárið með háskatíðindum sem skuku Bjargarbúa við upphaf ársins.
Þegar Bjargarbúar vöknuðu á nýársdag þá voru hestarnir horfnir. Þeir höfðu fælst við flugeldaskarkalann.
Því var tekið að litast um.
Það var leitað þar til það var orðið dimmt.
Í dag var svo haldið áfram að leita og voru Nípármenn og Árteigsmenn einnig að hjálpa.
Undirrituð var svo í beinu sambandi við alla sem gátu gefið upplýsingar.
Um kaffileytið fundust þeir. Beint upp og vestur af Skál. Í Nípunni, í um 1000 metra hæð.
Þóru tókst að koma hestunum niður.
Þetta endaði því að því best ég veit vel.
Ég leitaði þess vegna upp leiðbeiningar hjá reyndri hestakonu um hvernig eigi að hirða hesta á stundum sem þessum. Hún segir að hafa eigi að hesta á húsi, gefa þeim nóg af fóðri, hafa ljós og svo að hafa tónlist nokkuð hátt stillta. Þannig eiga þeir víst að haldast rólegir. Gott að vita.
JBH