Beint á leiðarkerfi vefsins

Jóna Björg

8.11.2009

Rúningsnámskeið

Ég skráði mig á námskeið í rúningi sem var haldið 5. og 6. nóvember síðastliðinn. Guðmundur Hallgrímsson kenndi og fór kennslan fram á Hesti í Borgarfirði.

Farið var yfir rúningsaðferðina sem og líkamsbeitingu og aðferða við láta kindina haga sér. Þetta var oft eins og að læra flókinn tangó! Skref til hægri, hælinn út, stíga fram, stíga aftur og beygja!

Fegurðardís

Engu að síður afar skemmtilegt þótt ég hefði verið alsett marblettum eftir styggt Hestsféð. Síðan er stefnan sett á að fá að prófa að rýja kindurnar heima á Björgum og sannfæra föður minn um að fá að grípa í kindur, því hans rúningsaðferð er ólík þeirri sem ég lærði.  Hvernig mun svo ganga er óvíst og hvort ég muni gefast upp eftir nokkrar er stór spurning!

Þessi verður rúin inn að skinni! :)

JBH


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré