Beint á leiðarkerfi vefsins

Jóna Björg

Já, góðan daginn. Jóna Björg heiti ég Hlöðversdóttir og er miðdóttir þeirra heiðurshjóna, Konnýjar og Hlöðvers.

Ég hef alla tíð verið þakklát foreldrum mínum fyrir að hafa ekki vitað að hægt væri að skíra börn Hlöðverína.

Jæja, ég fæddist á Húsavík, skömmu fyrir jól en fór þaðan beint í sveitina og fór lítið þaðan næstu 15 árin, nema til að sækja nauðsynlega menntun í Hafralækjarskóla.

Að loknum grunnskóla, fór ég inn á Akureyri og settist á skólabekk í Menntaskólanum á Akureyri og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 2005.

Þótti mér þá nóg komið af Akureyri í bili og færði mig enn um set, nú til Reykjavíkur og fékk inngöngu í Háskólann í Reykjavík þar sem ég lærði lögfræði af nokkrum móð í 1 og hálft ár. Að þeim tíma liðnum þótti mér nóg komið af skólasetu og námi, svo ekki sé minnst á áhugaleysi fyrir lögfræði.

Ég hóf þá störf á Verkfræðistofunni Hnit þar sem ég starfaði á í um 1 og hálft ár. Meðfram vinnunni hóf ég nám í LBHÍ en svo fór að ég hætti að vinna, flutti á Hvanneyri haustið 2008 og hóf fullt nám í Búvísindum.

Nú er ég að verða hálfnuð með það nám og er mjög ánægð hér á Hvanneyri, hvað tekur við eftir námið er óvíst eins og mín er lenska! ;)

 


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré