Beint á leiðarkerfi vefsins

Kristjana og Sigurður

5.3.2007

Skrif á vefinn

Einfaldast er að nota svokallað fréttakerfi Outcome til að skrifa á vefinn og skulum við einbeita okkur að því að nota það til að byrja með.

Ég hef stofnað svokallaðan fréttaflokk fyrir hvern og einn með eftirfarandi nöfnum.  Hver flokkur er tengdur við vefsvæði hvers og eins, og við stofnun flokksins er ákveðið birtingarform textans á vefsíðunni.   

Aðalsíða   ólæstur
Anna Björg   ólæstur
Anna Elísabet   ólæstur
Ásta Ósk   ólæstur
Ásta Soffía   ólæstur

Hlöðver og Konný

  ólæstur
Hlöðver Stefán   ólæstur
Jón Hlöðver   ólæstur
Jóna Björg   ólæstur
Kristjana og Sigurður   ólæstur
Sólveig Ásta   ólæstur
Sólveig og Ari   ólæstur
Þorgeir og Sigríður   ólæstur
Þóra Magnea  

ólæstur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar skrifa skal á vefinn er valinn liðurinn ný frétt, og þá fyrst valin heiti þess sem birta skal.

Næst er valinn fréttaflokkur sem við á, sbr. ofar.  Síðan er hægt að velja hvort texti eigi að birtast á síðum annarra, t.d. hjá krökkunum að það birtist einnig hjá foreldrum o.s.frv.

Síðan er skrifaður stuttur útdráttur, t.d. ein lína með lítilli mynd.

Að síðustu er skrifaður allur textinn, með t.d. stærri útgáfum af myndinni og tengingum í aðrar skrár ef vill

Nóg í bili...  Þorgeir



Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré