
Í tilefni af sumardeginum fyrsta fórum við í skrúðgöngu frá Digraneskirkju niður í Smára. Skátarnir fóru fyrstir og skólahljómsveitin sá um göngutaktinn og hraðann með kröftugu spili.
Veðrið hæfði vel deginum; glampandi sólskin, næstum logn og þokkalega hlýtt. Lóan spókaði sig í nágrenninu og þrestir leituðu sér að æti í garðinum hjá okkur.
SBH