Beint á leiðarkerfi vefsins

Sólveig og Ari

24.4.2007

"Fjölgun" í fjölskyldunni

Við ákváðum nýlega að gerast  stuðningsfjölskylda fyrir börn í Kenýa. Við völdum að styrkja systur Purity

Grace

Purity, 8 ára

                                                            Grace, 11 ára

                                                 

 

Þær eru búnar að missa báða foreldra sína úr eyðni en búa hjá ömmu sinni í leirkofa án rennandi vatns, rafmagns eða klósetts. Með okkar styrk er þeim tryggð örugg skólaganga, ein máltíð á dag og læknishjálp.

Kveikjuna að þessu má líklega rekja til ferðar okkar Ara til Kenýa í febrúar 2006. Eitt af mörgu minnisstæðu frá þessari ferð eru börnin sem urðu á leið okkar. Víða sem við stoppuðum birtist hópur barna sum til að skoða okkur en einnig til að athuga hvort við hefðum eitthvað að gefa þeim. kenýa4Falleg og brosandi börn.

kenýa5

 

Flest þau sem við sáum virtust hafa það þokkalegt miðað við aðstæður í landinu en okkur var einnig bent á fátækrahverfi í Naíróbi þar sem fólk býr við hræðilegar aðstæður án rafmagns og hreinlætisaðstöðu og börnin annað hvort í lélegum eða engum skóla.

kenýa2

kenýa2

 

Myndir af aðstæðum í hverfinu

 

 

ABC barnahjálp fór af stað með hjálparstarf í þessu hverfi í Naíróbi haustið 2006 með það að markmiði að hjálpa sem flestum börnum í hverfinu. Stofnaður hefur verið skóli og heimavist komið á fyrir nokkurn hóp barna. Þær systur munu dvelja áfram heima hjá ömmu sinni en sækja skóla hjá ABC.

kenýa3

 

Lesa má nánar um starf ABC í Kenýa hér

Þátt  Stöðvar2 frá Nairobi má finna hér

 

 

 

 

SBH


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré