Beint á leiðarkerfi vefsins

Sólveig og Ari

17.8.2009

Nýtum landsins gæði

aðalbláber

 

Aðalbláberin voru mjög stór og falleg en það hefðu mátt vera fleiri sólardagar til að týna þau.

Krækiberin voru víða í miklu magni og stór. Saftin úr þeim endist vonandi veturinn.

 

 

 

fjallagrös

 

Fjallagrös finnast orðið á ótrúlegustu stöðum í Bjargarlandi, niður á bakka og í hólmanum, norðan við vatn og upp á fjalli. Nú þarf því ekki lengur að fara upp til heiða til að safna grösum.

Það kemur sér vel því að fjallagrasabrauðið hvarf af borðinu um leið.

 

 

hvönn

 

Hvönnin hefur einnig verið nýtt, með rabbarbara í sultu og fræin þurrkuð  í brauð.

Hvoru tveggja ótrúlega gott

 

 

 

Hrútaber

 

Hrútaberin í Blikahjallanum hafa aldrei verið meiri né stærri undanfarin 10 ár.

Hlaupið úr þeim er mjög gott, aðeins beiskt en bragðmikið.

 

 

Þá er bara að undirbúa sig fyrir næsta sumar og nýta þá m.a. njólann og garðakerfilinn sem er að ergja mann.

SBH


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré