Beint á leiðarkerfi vefsins

Sólveig og Ari

19.7.2010

Fjölskyldumót 2010

Fræðst um framræsluskurði og áveitu

 

 

Flestir mættu á föstudagskvöld og tjölduðu en formleg dagskrá hófst um hádegi á laugardag með gönguferð suður á Hagagerði og niður að fljóti með góðri leiðsögn Hlöðvers bónda. Jafnvel innfæddir voru fróðari á eftir.

 

 

 

... greinilegt að enginn þarf að fara svangur frá borði

 

Hið hefðbundna kaffihlaðborð var á sínum stað, síðan leikir og spjall þar til grillveisla kvöldsins hófst. 

 

 

 

 

 Kakan í krúsinni

 

Vegleg skemmtidagskrá var að kvöldverði loknum með upplestri, söng, hljóðfæraleik og gamanmálum en hápunkturinn var þó leikþátturinn „Kakan í krúsinni“ sem saminn og fluttur var af leikhópnum Fjölleik sem í voru öll börnin á staðnum. Leikþátturinn vakti mikla lukku meðal áhorfenda og allir leikarar stóðu sig frábærlega.

Logar glatt í rökkrinu og þokunni

 

 

 

Dagskráin endaði síðan við varðeld þar sem sungið var af miklum móð við gítarundirleik fram á nótt.

 

Fleiri myndir frá fjölskyldumótinu má sjá hér


Stjórnborð

Forsíða vefsinsStækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré