Veturinn er til margra hluta nytsamlegur. Það má fara í 6-8 vikna dekurfrí, taka á móti erlendum ferðamönnum eða vera tekinn tali í sjónvarpi allra landsmanna. Það er hinsvegar ekki efni þessara frétta heldur uppfærðar innréttingar í fjósinu.
Lengi vel hafa kýrnar komist upp með að slæða töluverðu fóðri niður í flórinn með tilheyrandi sliti á sköfukerum og sóðaskap.
Með þessum skágrindum er vonandi að þetta vandamál minnki og verði vonandi að engu! :)
Þá hefur smákálfastía verið endurbætt í vetur þannig að smákálfar hafi betra aðgengi að kjarnfóðri og nú saltsteini